Walter Scheel
Forseti Vestur-Þýskalands (1919-2016) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Walter Scheel (8. júlí 1919 – 24. ágúst 2016) var þýskur stjórnmálamaður og meðlimur í Frjálsa demókrataflokknum (FDP). Scheel var forseti Vestur-Þýskalands frá 1974 til 1979.
Walter Scheel | |
---|---|
Forseti Vestur-Þýskalands | |
Í embætti 1. júlí 1974 – 30. júní 1979 | |
Kanslari | Helmut Schmidt |
Forveri | Gustav Heinemann |
Eftirmaður | Karl Carstens |
Varakanslari Vestur-Þýskalands | |
Í embætti 22. október 1969 – 16. maí 1974 | |
Kanslari | Willy Brandt |
Forveri | Willy Brandt |
Eftirmaður | Hans-Dietrich Genscher |
Utanríkisráðherra Vestur-Þýskalands | |
Í embætti 21. október 1969 – 16. maí 1974 | |
Kanslari | Willy Brandt |
Forveri | Willy Brandt |
Eftirmaður | Hans-Dietrich Genscher |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 8. júlí 1919 Höhscheid, Rínarhéraði, Fríríkinu Prússlandi, Weimar-lýðveldinu |
Látinn | 24. ágúst 2016 (97 ára) Bad Krozingen, Baden-Württemberg, Þýskalandi |
Þjóðerni | Þýskur |
Stjórnmálaflokkur | Frjálsi demókrataflokkurinn (1946–2016) Nasistaflokkurinn (1942–1945) |
Maki | Eva Charlotte Kronenberg (g. 1942; d. 1966) Mildred Wirtz (g. 1969; d. 1985) Barbara Wiese (g. 1988) |
Börn | 4 |
Verðlaun | Karlsverðlaunin (1977) |
Undirskrift |
Scheel tilheyrði vinstri væng FDP og varð árið 1961 efnahagsmálaráðherra Vestur-Þýskalands. Hann tók við forystu Frjálsa demókrata sjö árum síðar og stóð fyrir myndun bandalags flokksins við Jafnaðarmannaflokkinn undir stjórn Willy Brandt. Flokkarnir tveir mynduðu samsteypustjórn árið 1969 þar sem Scheel varð varakanslari og utanríkisráðherra. Í því embætti studdi hann hina svokölluðu austurstefnu Brandt, sem fól í sér sáttaviðleitni gagnvart Austur-Þýskalandi.
Scheel var kjörinn forseti Vestur-Þýskalands árið 1974. Hann gegndi einu fimm ára kjörtímabili í því embætti en gaf ekki kost á sér til endurkjörs árið 1979 þar sem hann skorti þá stuðning á þingi.