![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a7/Werke_und_Tage.jpg/640px-Werke_und_Tage.jpg&w=640&q=50)
Verk og dagar
From Wikipedia, the free encyclopedia
Verk og dagar (á forngrísku Ἔργα καὶ Ἡμέραι / Erga kaì Hêmerai) er forngrískt kvæði í um 800 línum eftir forngríska skáldið Hesíódos, samið um 700 f.Kr.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a7/Werke_und_Tage.jpg/640px-Werke_und_Tage.jpg)
Efni kvæðisins er tvíþætt og fjallar um það að vinnan sé hlutskipti mannsins en vinnan göfgar manninn og þeim vinnusama reiðir vel af. Fræðimenn hafa löngum litið verkið í samhengi landbúnaðarkreppu á meginlandi Grikklands, sem leiddi til nýlendutímans.
Í Verki og dögum lýsir Hesíódos fimm skeiðum mannlegrar tilvistar, vieitir ýmis ráð og mælir með heiðarlegu og vinnusömu líferni en ræðst á leti og ranglæti. Í kvæðinu er ódauðlegum guðum lýst, sem reika um jörðina og gæta þess að réttlæti ríki í heiminum