From Wikipedia, the free encyclopedia
Vítisenglar (enska: Hells Angels) er samtök áhugafólks um vélhjól, og aka vanalega á Harley-Davidson vélhjólum. Félagsamtökin eru starfrækt í mörgum löndum, í Bandaríkjunum og Kanada eru þau skrásett sem fyrirtæki. Löggæsluyfirvöld víða um heim svo sem FBI hafa grun um að félagar samtakanna taki þátt í ólöglegri starfsemi svo sem ofbeldisverkum, vændi, peningaþvætti, sölu og dreifingu eiturlyfja og þýfis. Talsmenn samtakanna halda því fram að þeir séu fórnarlömb ofsókna á þann hátt að þó 1 % félaga taki þátt í ólöglegu athæfi þá séu hinir 99% látnir gjalda þess þó þeir séu löghlýðnir borgarar.
Samtökin voru stofnuð árið 1948 í Fontana, Kaliforníu og fengu nafnið "Hells Angels" eftir 303 sprengjusveit í flugher Bandaríkjanna sem stofnuð var í byrjun seinni heimstyrjaldarinnar.
Íslensk lögregluyfirvöld telja félagasamtökin skipulögð glæpasamtök og hafa nokkrum sinnum meinað norrænum vítisenglum að koma til Íslands. Lögregluyfirvöld telja að samtökin hyggist ná fótfestu hér á landi í gegnum vélhjólaklúbbinn Fáfni í Grindavík. För hóps norrænna Vítisengla til Íslands var stöðvuð í febrúar 2002. Talsmenn Fáfnis segja Vítisenglana þá hafa verið ferðamenn sem hugðu á ævintýraferð upp á Langjökul og skoða Gullfoss og Geysi og Bláa lónið. För átta norrænna Vítisengla var stöðvuð í nóvember 2007 er þeir hugðust sitja 11. ára afmælisfagnað Fáfnis í Reykjavík.
Í Kanada eru litið á Vítisengla sem glæpasamtök.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.