Vín (Austurríki)
Höfuðborg og stærsta borg Austurríkis / From Wikipedia, the free encyclopedia
Vín eða Vínarborg (þýska: Wien) er höfuðborg Austurríkis og stærsta borg landsins. Þar búa rúmlega 1,8 milljónir manna en 2,7 milljónir (1. janúar 2015) búa á stórborgarsvæðinu. Vín var áður fyrr aðsetur Habsborgaranna og hefur í margar aldir verið höfuðborg þýska ríkisins, sem og Austurríkis þegar það gekk úr ríkinu á 19. öld. Vín er mikil ráðstefnuborg. Þar eru einnig aðsetur fjölda alþjóðastofnanna. Miðborgin, sem og nokkrar aðrar byggingar, eru á heimsminjaskrá UNESCO. Borgin Vín er að sama skapi eigið sambandsland í Austurríki, það fjölmennasta, en jafnframt það minnsta.
Staðreyndir strax Wien (þýska), Land ...
Vín
Wien (þýska) | |
---|---|
Hnit: 48°12′30″N 16°22′21″A | |
Land | Austurríki |
Stjórnarfar | |
• Borgarstjóri | Michael Ludwig (SPÖ) |
Flatarmál | |
• Samtals | 414,78 km2 |
Mannfjöldi (2023) | |
• Samtals | 2.002.821 |
Tímabelti | UTC+1 (CET) |
• Sumartími | UTC+2 (CEST) |
Vefsíða | www |
Loka