![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/23/EuroHungr%25C3%25ADa.svg/langis-640px-EuroHungr%25C3%25ADa.svg.png&w=640&q=50)
Ungverjaland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
yfirlit um þátttöku Ungverjalands í Eurovision / From Wikipedia, the free encyclopedia
Ungverjaland hefur tekið þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 17 sinnum síðan að frumraun landsins í keppninni átti sér stað árið 1994. Landið reyndi að taka þátt árið 1993, en komst ekki áfram úr undankeppninni.[lower-alpha 1]
Staðreyndir strax Ágrip, Tenglar ...
Ungverjaland | |
---|---|
Sjónvarpsstöð | Duna |
Söngvakeppni | A Dal |
Ágrip | |
Þátttaka | 17 (14 úrslit) |
Fyrsta þátttaka | 1994 |
Besta niðurstaða | 4. sæti: 1994 |
Núll stig | Aldrei |
Tenglar | |
Síða Ungverjalands á Eurovision.tv |
Loka
Fyrsta þátttaka landsins árið 1994 reyndist vera sú árangursríkasta þar sem að Friderika Bayer endaði í fjórða sæti. Eina önnur topp-5 niðurstaða landsins var árið 2014 með András Kállay-Saunders í fimmta sæti. Aðrar topp-10 niðurstöður voru með Magdi Rúzsa í níunda sæti (2007), ByeAlex í tíunda sæti (2013) og Joci Pápai í áttunda sæti (2017).