Umboðsmaður Alþingis
aðili sem hefur eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga / From Wikipedia, the free encyclopedia
Umboðsmaður Alþingis er kjörinn af Alþingi og starfar samkvæmt samnefndum lögum nr. 85/1997.[1] Hlutverk umboðsmanns er að hafa í umboði Alþingis eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga og tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum landsins. Þá skal hann gæta þess að jafnræði sé í heiðri haft í stjórnsýslunni og að hún fari að öðru leyti fram í samræmi við lög, vandaða stjórnsýsluhætti og siðareglur settar á grundvelli laga um Stjórnarráð Íslands og laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Umboðsmaður er í störfum sínum óháður fyrirmælum frá öðrum, þar með töldu Alþingi.
Umboðsmaður Alþingis | |
Rekstrarform | Stofnun Alþingis |
---|---|
Stofnað | 1988 |
Staðsetning | Þórshamri, Templarasundi 5 Reykjavík |
Lykilpersónur | Skúli Magnússon, umboðsmaður Alþingis |
Starfsemi | Opinber starfsemi |
Vefsíða | ubodsmadur.is |
Eftirlit umboðsmanns Alþingis með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga er fyrst fremst fólgið í því að til hans geta leitað einstaklingar og lögaðilar, sem telja að á sér hafi verið brotið í stjórnsýslunni, með kvartanir og getur umboðsmaður þá tekið málið til meðferðar. Umboðsmaður getur látið í ljós álit sitt á því hvort athöfn stjórnvalds brjóti í bága við lög eða hvort annars hafi verið brotið gegn vönduðum stjórnsýsluháttum eða siðareglum. Álit umboðsmanns Alþingis eru óbindandi fyrir stjórnvöld en reynslan sýnir að stjórnvöld fara eftir þeim í flestum tilvikum.
Núverandi umboðsmaður Alþingis er Skúli Magnússon en hann hefur gegnt embættinu frá árinu 2021.[2] Embætti umboðsmanns Alþingis er til húsa í Þórshamri, Templarasundi 5 í Reykjavík.