Tígrisdýr
From Wikipedia, the free encyclopedia
Tígrisdýr eða tígur (fræðiheiti: Panthera tigris) er stærsta tegundin af fjórum innan ættkvíslar stórkatta (panthera). Hinar þrjár tegundirnar eru hlébarði, ljón og jagúar. Tígrisdýr geta orðið 3,3 metrar á lengd og vegið allt að 306 kílóum. Það er þriðja stærsta landrándýrið (á eftir ísbirni og skógarbirni). Það er með einkennandi svartar rendur á rauðgulum feldi. Það er með einstaklega sterkar og langar vígtennur sem geta orðið allt að 9 cm að lengd. Þau geta orðið allt að 26 ára gömul.
Tígrisdýr Tímabil steingervinga: Snemma á pleistósen – nútíma | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Bengaltígur (P. tigris tigris) í Ranthambhore-þjóðgarðinum á Indlandi. | ||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Panthera tigris (Linnaeus, 1758) | ||||||||||||||
Söguleg útbreiðsla tígrisdýra um 1850 (ljósgult) og 2006 (grænt) | ||||||||||||||
Undirtegundir | ||||||||||||||
Bengaltígur (P. t. tigris) | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Tigris striatus Severtzov, 1858 |
Tígrisdýr voru áður algeng um alla Asíu en hefur fækkað mjög svo nú ná búsvæði þeirra aðeins yfir 7% af sögulegu útbreiðslusvæði. Þær sex deilitegundir sem eftir eru eru skilgreindar í útrýmingarhættu af IUCN. Talið er að milli 3.062 og 3.948 dýr séu enn til í náttúrunni en voru um 100.000 við upphaf 20. aldar. Stofnarnir hafa lifað af á litlum einangruðum svæðum. Helstu ástæður fækkunar tígrisdýra eru búsvæðaeyðing, tvístrun búsvæða og veiðiþjófnaður.