![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/cc/Snow_leopard_in_Afghanistan.jpg/640px-Snow_leopard_in_Afghanistan.jpg&w=640&q=50)
Stórkettir
From Wikipedia, the free encyclopedia
Stórkettir (fræðiheiti: Panthera) eru ættkvísl kattardýra sem Lorenz Oken lýsti fyrst árið 1816. Hann setti öll blettótt kattardýr í þennan flokk. Reginald Innes Pocock endurskoðaði flokkunina 1916 með hliðsjón af lagi hauskúpunnar og lét flokkinn ná yfir fjórar tegundir: tígrisdýr (P. tigris), ljón (P. leo), jagúar (P. onca) og hlébarða (P. pardus). Síðari erfðafræðirannsóknir hafa leitt í ljós að snjóhlébarði (P. uncia, áður Uncia uncia) á heima í þessum flokki.
Staðreyndir strax Panthera Tímabil steingervinga: Síð-Míósen – nútími, Vísindaleg flokkun ...
Panthera Tímabil steingervinga: Síð-Míósen – nútími | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() ![]() Tígrisdýr, ljón, jagúar, hlébarði, snjóhlébarði | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Einkennistegund | ||||||||||||||
Panthera pardus Linnaeus, 1758 | ||||||||||||||
Núlifandi tegundir | ||||||||||||||
Loka
Tígrisdýr, hlébarði, ljón og jagúar eru einu kattardýrin sem geta öskrað. Snjóhlébarðinn öskrar ekki. Getan til að öskra stafar af lögun barkakýlisins.