From Wikipedia, the free encyclopedia
Súesdeilan, þriggjaveldainnrásin, Kadesh-aðgerðin eða Sínaí-stríðið var innrás Ísraels, Bretlands og Frakklands í Egyptaland árið 1956. Markmið innrásarríkjanna var að endurheimta völd vesturveldanna á Súesskurðinum og hrekja Gamal Abdel Nasser forseta Egyptalands, sem hafði þá nýlega þjóðnýtt skurðinn, frá völdum.[1] Eftir að átökin hófust beittu Bandaríkin, Sovétríkin og Sameinuðu þjóðirnar þrýstingi á innrásarríkin til að stöðva innrásina. Þessi atburðarás var mikil auðmýking fyrir Breta og Frakka[2] og styrkti mjög stöðu Nassers.[3][4]
Súesdeilan | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Hluti af kalda stríðinu og deilum araba og Ísraela | |||||||
Laskaðir egypskir skriðdrekar á Sínaískaga árið 1956. | |||||||
| |||||||
Stríðsaðilar | |||||||
Bretland Frakkland Ísrael | Egyptaland | ||||||
Leiðtogar | |||||||
Anthony Eden Guy Mollet David Ben-Gurion | Gamal Abdel Nasser | ||||||
Fjöldi hermanna | |||||||
175.000 45.000 34.000 | 300.000 | ||||||
Mannfall og tjón | |||||||
Ísrael:
Bretland:
Frakkland:
|
|
Þann 29. október réðust Ísraelsmenn inn á yfirráðasvæði Egypta á Sínaískaga. Bretar og Frakkar sendu sameiginlega úrslitakosti til beggja aðila um að hætta átökum nærri Súesskurði. Þann 5. nóvember lentu breskir og franskir fallhlífaliðar við Súesskurðinn. Egypski herinn var sigraður en tókst þó að loka ferð allra kaupskipa um skurðinn. Það varð síðar ljóst að innrás Ísraelsmanna og árás Breta og Frakka sem fylgdi í kjölfarið höfðu verið skipulagðar fyrirfram af ríkjunum þremur.
Bandamennirnir þrír náðu flestum hernaðarmarkmiðum sínum en skurðurinn var nú ónothæfur. Stjórnmálaþrýstingur frá Bandaríkjunum og Sovétríkjunum leiddi til þess að bandamenn drógu herafla sína burt úr Egyptalandi. Dwight D. Eisenhower Bandaríkjaforseti hafði varað Bretland gegn því að gera innrás og hótaði nú alvarlegum efnahagsrefsingum gegn Bretum með því að selja skuldabréf sem Bandaríkjastjórn átti í breskum pundum. Sagnfræðingar telja Súesdeiluna almennt marka endalok Bretlands sem heimsveldis.[5][6] Súesskurðurinn var lokaður frá október 1956 fram í mars 1957. Ísraelsmönnum tókst að ná fram sumum markmiðum sínum, eins og að tryggja siglingarétt Ísraelsmanna í gegnum Tíransund, sem Egyptar höfðu lokað fyrir þeim frá árinu 1950.[7]
Vegna átakanna stofnuðu Sameinuðu þjóðirnar sérsveit friðargæslusveita Sameinuðu þjóðanna (UNEF) til þess að standa vörð um landamæri Egyptalands og Ísraels. Anthony Eden forsætisráðherra Bretlands sagði af sér, Lester B. Pearson utanríkisráðherra Kanada vann friðarverðlaun Nóbels og Sovétríkin fengu hugsanlega kjark til þess að ráðast inn í Ungverjaland.[8][9]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.