Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 1957
From Wikipedia, the free encyclopedia
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 1957 var önnur söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Hún var haldin sunnudaginn 3. mars 1957 í Frankfurt, Vestur-Þýskalandi. Holland vann keppnina með laginu „Net als toen“ sem sungið var af Corry Brokken. Líkt og ári áður var keppnin að mestu leyti útvarpsþáttur en mun fleiri horfðu þó á hana í sjónvarpi þetta ár en árinu áður.
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 1957 | |
---|---|
Dagsetningar | |
Úrslit | 3. mars 1957 |
Umsjón | |
Staður | Frankfurt, Vestur-Þýskaland |
Kynnar | Anaïd Iplicjian |
Sjónvarpsstöð | HR/ARD |
Vefsíða | eurovision |
Þátttakendur | |
Fjöldi þátttakenda | 10 |
Frumraun landa | Austurríki Bretland |
1956 ← Eurovision → 1958 |
Lengi voru uppi sögusagnir um að Þýskaland hafi fengið að halda keppnina vegna þess að það lenti í öðru sæti árið 1956 með laginu „Im Wartesaal zum großen Glück“ með Walter Andreas Schwarz. Raunin var þó sú að úrslit annarra laga en sigurlagsins voru aldrei kunngjörð árið 1956 og að reglan um að sigurlandið héldi keppnina ári seinna var ekki komin til svona snemma. Á þessum árum áttu löndin sem kepptu að skiptast á að halda keppnina, sama hver útkoman væri. Vegna þess hve keppnislöndum fjölgaði hratt var þó hætt við þá reglu.