Sund á Íslandi
From Wikipedia, the free encyclopedia
Sund á Íslandi er mikilvæg íþrótt og afþreying. Útisundlaugar þar sem vatnið er hitað með jarðhita, eru eitt af því sem einkennir íslenskt samfélag. Sundlaugar eru mikilvæg almenningsrými á Íslandi og þar fer fram mikið félagslíf, auk sunds.[1][2] Sundkennsla er skyldufag í grunnskóla og sundkunnátta því mjög almenn. Víðast hvar fer kennslan fram í einni af fjölmörgum almenningssundlaugum landsins. Margar af þessum laugum hafa sérstaka leikaðstöðu fyrir börn og fjölbreytta aðstöðu fyrir ýmis konar heilsuiðkun, eins og sólbaðsaðstöðu, heita potta, nuddpotta, eimböð og sánur. Sjósund er líka vinsælt á Íslandi og sérstök aðstaða fyrir sjósundsiðkun hefur verið byggð upp í Nauthólsvík í Reykjavík og við Langasand á Akranesi. Frá 8. áratug 20. aldar hefur jarðhitinn verið notaður til að hita upp sérhönnuð baðlón víða um land, sem eru vinsælir áfangastaðir ferðafólks. Dæmi um slík baðlón eru Bláa lónið, Jarðböðin við Mývatn, Sky Lagoon, Skógarböðin, GeoSea, Vök og Hvammsvík sjóböð.
Í þjónustukönnun Reykjavíkurborgar 2019 sögðust 73% svarenda hafa farið í sund á síðustu 12 mánuðum.[3] Ánægja með sundlaugarnar mældist líka mjög mikil í sömu könnun. Í alþjóðlegri viðhorfakönnun frá 2022 kom fram að um 40% fullorðinna Íslendinga stunduðu sund reglulega, en um 20% sögðust aldrei fara í sund.[4] Sundmenning á Íslandi hefur verið mörgum innblástur. Jón Karl Helgason hefur gert tvær heimildarmyndir um sund á Íslandi: Sundið (2012) og Sundlaugarsögur (2022) og Birnir Jón Sigurðsson setti upp leikverkið Sund í Tjarnarbíói árið 2023. Það ár kom fram hugmynd um að skrá sundið á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf.[5]
Íslenskt sundfólk hefur oft náð langt á alþjóðlegum mótum. Örn Arnarson varð til dæmis Evrópumeistari í baksundi árin 1998, 1999, 2000 og 2002 og náði 4. sæti á Ólympíuleikunum árið 2000. Hrafnhildur Lúthersdóttir vann silfurverðlaun í 50 og 100 metra bringusundi á Evrópumeistaramótinu 2016, auk bronsverðlauna í 200 metra bringusundi; og Anton Sveinn McKee vann silfurverðlaun í 200 metra bringusundi á Evrópumótinu í 25 metra laug árið 2023. Ísland sendi fyrst sundlið á ólympíuleikana 1948 og hefur tekið þátt í sundi á leikunum nær óslitið frá 1960. Sundsamband Íslands hefur umsjón með sundmótum á Íslandi og er aðili að Alþjóðasundsambandinu.[6] Nokkur fjöldi sundliða er á Íslandi, eins og Sundfélagið Ægir, Sundfélagið Óðinn, Sundfélag Hafnarfjarðar, Sundfélag Akraness, Sunddeild ÍRB, Sunddeild KR, Sunddeild Ármanns, Sundfélag ÍBV og Sunddeild Breiðabliks.