![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/6d/2020_Summer_Olympics_text_logo.svg/langis-640px-2020_Summer_Olympics_text_logo.svg.png&w=640&q=50)
Sumarólympíuleikarnir 2021
From Wikipedia, the free encyclopedia
Sumarólympíuleikarnir 2020 eða 32. Ólympíuleikarnir (japanska: 第三十二回オリンピック競技大会 Hepburn: Dai Sanjūni-kai Orinpikku Kyōgi Taikai) voru alþjóðlegt íþróttamót sem upphaflega stóð til að halda í Tókýó í Japan 24. júlí til 9. ágúst árið 2020. Vegna COVID-19-faraldursins var ákveðið að flytja leikana til 2021.[1] Þrátt fyrir frestunina var nafnið Tókýó 2020 engu að síður formlega notað yfir Ólympíuleikana í auglýsingum og skipulagningu þeirra.[2] Leikarnir hófust 23. júlí og lauk 8. ágúst.
32. sumarólympíuleikarnir | |
![]() | |
Bær: | Tókýó, Japan |
Þátttökulönd: | 204 |
Þátttakendur: | 11.656 (5.704 karlar, 5.386 konur) |
Keppnir: | 339 í 33 greinum |
Hófust: | 23. júlí |
Lauk: | 8. ágúst |
Settir af: | Naruhito keisara |
Íslenskur fánaberi: | Snæfríður Sól Jórunnardóttir og Anton Sveinn McKee |
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/e9/Kokuritsu_Kasumigaoka_Rikujo_Kyogijo-21i.jpg/640px-Kokuritsu_Kasumigaoka_Rikujo_Kyogijo-21i.jpg)
Tókýó var valin á 125. fundi Alþjóðaólympíunefndarinnar í Buenos Aires 7. september 2013. Þetta var í annað skiptið frá leikunum 1964 sem Ólympíuleikarnir voru haldnir í Tókýó sem varð þar með fyrsta borgin í Asíu sem hýsir leikana tvisvar. Þetta var í fjórða skiptið sem Ólympíuleikarnir voru haldnir í Japan, á eftir Vetrarólympíuleikunum 1972 í Sapporo og Vetrarólympíuleikunum 1998 í Nagano. Þetta voru auk þess aðrir Ólympíuleikarnir í röð þriggja leika sem haldnir eru í Austur-Asíu á eftir Vetrarólympíuleikunum 2018 í Suður-Kóreu og fyrir Vetrarólympíuleikana 2022 í Kína.
Á þessum Ólympíuleikum var keppt í nokkrum nýjum íþróttagreinum, þar á meðal 3x3-körfubolta, Freestyle BMX-hjólreiðum og Madison-boðhjólreiðum. Samkvæmt nýjum reglum Alþjóðaólympíunefndarinnar gat ólympíunefndin sem heldur leikana leyft keppnir í öðrum greinum en kjarnagreinum Ólympíuleikanna. Þannig var keppt í karate, sportklifri, brimbrettasiglingum og hjólabrettum á leikunum í Tókýó. Að auki var keppt í hafnarbolta og mjúkbolta sem duttu út eftir 2008. Alls voru 339 keppnir í 33 greinum. Engir áhorfendur voru vegna aukningar kórónaveirusmita í Japan.