![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d1/Paris_75007_Champ-de-Mars_lawn_20170526_Eiffel_Tower_%25282%2529.jpg/640px-Paris_75007_Champ-de-Mars_lawn_20170526_Eiffel_Tower_%25282%2529.jpg&w=640&q=50)
Sumarólympíuleikarnir 2024
From Wikipedia, the free encyclopedia
Sumarólympíuleikarnir 2024 eru alþjóðlegt fjölíþróttamót sem verður haldið 26. júlí til 11. ágúst árið 2024 í París, Frakklandi. Meginhluti leikanna fer fram í París, en annars dreifast þeir á 16 aðrar borgir á meginlandi Frakklands, auk eins viðburðar á Tahítí (brimbrettabrun) í Frönsku Pólýnesíu.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d1/Paris_75007_Champ-de-Mars_lawn_20170526_Eiffel_Tower_%282%29.jpg/640px-Paris_75007_Champ-de-Mars_lawn_20170526_Eiffel_Tower_%282%29.jpg)
París hefur haldið leikana áður árin 1900 og 1924 og verður þar með önnur borgin sem heldur þá þrisvar, á eftir London. Árið 2024 verða hundrað ár liðin frá leikunum 1924. Þetta verða sjöttu ólympíuleikarnir sem haldnir verða í Frakklandi og þeir fyrstu eftir Vetrarólympíuleikana 1992 í Albertville. Eftir þessa ólympíuleika verða leikarnir aftur haldnir á fjögurra ára fresti, en vegna frestunar ólympíuleikanna í Tókýó (út af kórónaveirufaraldrinum) liðu aðeins þrjú ár frá þeim leikum að þessum.
Í París verður í fyrsta sinn keppt í breikdansi sem jafnframt verður fyrsta dansíþróttin í sögu sumarólympíuleikanna. Þetta verða síðustu ólympíuleikarnir í forsetatíð Thomas Bach sem hefur verið forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar frá 2013. Í fyrsta sinn munu jafn margar konur og karlar keppa. Deilt hefur verið um þátttöku íþróttafólks frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi á þessum leikum. Í júlí 2023 var ákveðið að þau fengju að keppa sem óháð íþróttafólk, án þjóðfána. Áætlað er að leikarnir í París muni kosta 8,3 milljarða evra.