Suður-Ameríkukeppni karla í knattspyrnu 1975
From Wikipedia, the free encyclopedia
Suður-Ameríkukeppni karla í knattspyrnu 1975 var 30. Suður-Ameríkukeppnin í knattspyrnu en átta ár voru liðin frá síðustu keppni. Í fyrsta sinn nefndist mótið Copa América, sem það hefur haldið til þessa dags. Önnur nýbreytni var sú að horfið var frá því að halda keppnina í einu landi. Þess í stað var leikið í þremur þriggja liða riðlum þar sem liðin léku heima og heiman. Sigurlið hvers riðils fór svo í undanúrslit ásamt ríkjandi meisturum Úrúgvæ.
Staðreyndir strax Upplýsingar móts, Dagsetningar ...
Upplýsingar móts | |
---|---|
Dagsetningar | 17. júlí til 28. október |
Lið | 10 |
Sætaröðun | |
Meistarar | ![]() |
Í öðru sæti | ![]() |
Tournament statistics | |
Leikir spilaðir | 25 |
Mörk skoruð | 79 (3,16 á leik) |
Áhorfendur | 1.053.000 (42.120 á leik) |
Markahæsti maður | ![]() ![]() (4 mörk hvor) |
Besti leikmaður | ![]() |
← 1967 1979 → |
Loka
Perúmenn urðu meistarar í annað sinn í sögunni eftir sigur á Kólumbíumönnum í úrslitum, sem aldrei áður höfðu hafnað meðal fögurra efstu liða.