Stýrikerfi
From Wikipedia, the free encyclopedia
Stýrikerfi er kerfishugbúnaður sem hefur það hlutverk að stýra aðgangi forrita að vélbúnaði tölvunnar og sjá þeim fyrir ýmis konar sameiginlegri þjónustu. Stýrikerfið hefur þannig umsjón með inntaks- og úttaksaðgerðum og minnisúthlutun fyrir notendaforrit þótt sjálft forritið sé keyrt af vélbúnaðinum beint.
Stýrikerfi er að finna í öllum tækjum sem innihalda tölvu, allt frá farsímum að ofurtölvum. Dæmi um stýrikerfi eru Microsoft Windows (í nokkrum útgáfum), macOS, Android, iOS (fyrir iPhone og iPad), "Linux" (Android notar líka kjarnann úr Linux), Chrome OS (notar líka Linux kjarnann). og mörg fleiri, flest ekki lengur studd s.s. Symbian sem áður var mjög vinsælt.
Windows hefur verið ráðandi stýrikerfi á hefðbundum PC tölvum (en ekki í upphafi), Linux er ráðandi á t.d. ofurtölvum (keyrir á öllum hraðvirkustu tölvum í heiminum, þ.e. t.d. öllum tölvunum á TOP500 ofurtölvulistanum). Android (byggt á Linux) er ráðandi á farsímum (en ekki í upphafi). Önnur ráðandi stýrikerfi eru til s.s. z/OS (hét áður OS/360) fyrir "mainframe" tölvur (sem eru aðallega notaðar í bankageiranum, þó svo að Unix, og Linux tölvur í seinni tíð, hafa að miklu leiti yfirtekið þann afmarkaða geira) sem flestar eru frá IBM. IBM framleiddi líka fyrstu einkatölvuna sem varð verulega vinsæl (sú eina sem enn er við lýði í samhæfðum útgáfum, og frá fleiri framleiðendum), þá með stýrikerfi (DOS sem er ekki lengur stutt) frá Microsoft.