Stundagyðjurnar (grísku: Ώρες) voru dætur Seifs og Þemisar.

Thumb
Eirene

Stundagyðjurnar eru venjulega taldar þrjár: Evnomía (= Lögmætisgyðja), Dika (= Réttvísi) og Eirene (= Friðsemd). Þar sem þær tákna hina lögboðnu rás tímans og árstíðanna, er Þemis talin móðir þeirra, hið eilífa lögmál alheims, dóttir Úranosar og Gaiu. Þemis heldur verndarhendi yfir allri lögbundinni skipan, bæði með guðum og mönnum. Í umboði Seifs, kallar hún saman ráðstefnur guðanna og meðal manna heldur hún á sama hátt hlífiskildi yfir þjóðþingum. Eins og þemis, móðir þeirra, koma stundagyðjurnar einnig fram sem þjónustumeyjar guðanna. Hómer segir, að þær gæti hliða himinsins, ýmist loki þær þeim með þykkum skýbólstrum eða opni þau með því að skjóta skýjunum frá.

  Þessi fornfræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.