![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/ae/US_10th_Mountain_Division_soldiers_in_Afghanistan.jpg/640px-US_10th_Mountain_Division_soldiers_in_Afghanistan.jpg&w=640&q=50)
Stríðið í Afganistan (2001–2021)
From Wikipedia, the free encyclopedia
Stríðið í Afganistan er stríð sem hófst þegar Bandaríkjamenn og aðildarþjóðir Atlantshafsbandalagsins réðust inn í Afganistan árið 2001. Stríðið entist í tæplega tuttugu ár og var lengsta stríð í sögu Bandaríkjanna.
Stríðið í Afganistan | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Hluti af stríðinu gegn hryðjuverkum | |||||||
![]() Bandarískir hermenn stíga um borð í herþyrlu í Afganistan árið 2003. | |||||||
| |||||||
Stríðsaðilar | |||||||
![]() ![]() ![]() |
![]() | ||||||
Leiðtogar | |||||||
|
| ||||||
Fjöldi hermanna | |||||||
|
| ||||||
Mannfall og tjón | |||||||
Alls um 69.698+ drepnir | Alls um 69.400+ drepnir | ||||||
Almennir borgarar drepnir: 38.480+[1][2] |
Á fyrsta kafla stríðsins sigruðu Bandaríkin og bandamenn þeirra stjórn Talíbana í Afganistan og komu á fót nýrri ríkisstjórn. Talíbanar háðu skæruhernað gegn nýju stjórninni og alþjóðlegum öryggissveitum í landinu í um tuttugu ár og náðu smám saman aftur töluverðu landsvæði.
Árið 2020 ákváðu Bandaríkjamenn að draga herlið sín frá landinu en þegar hafið var að flytja hermenn burt frá Afganistan næsta ár hófu Talíbanar leiftursókn gegn afgönskum stjórnvöldum og sigruðu stjórnarherinn á stuttum tíma. Talíbanar endurheimtu afgönsku höfuðborgina Kabúl þann 15. ágúst 2021 og höfðu aftur náð yfirráðum í Afganistan þegar Bandaríkjamenn hurfu endanlega frá landinu þann 30. ágúst.