![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/55/Stepan_Bandera_photo.jpg/640px-Stepan_Bandera_photo.jpg&w=640&q=50)
Stepan Bandera
From Wikipedia, the free encyclopedia
Stepan Andríjovytsj Bandera (úkraínska: Степа́н Андрі́йович Банде́ра; 1. janúar 1909 – 15. október 1959) var úkraínskur fasískur stjórnmálamaður[1][2] sem leiddi öfgahægrisinnaðan hernaðarvæng Samtaka úkraínskra þjóðernissinna (OÚN).
Staðreyndir strax Fæddur, Dáinn ...
Stepan Bandera Степан Бандера́ | |
---|---|
![]() | |
Fæddur | 1. janúar 1909 |
Dáinn | 15. október 1959 (50 ára) |
Þjóðerni | Úkraínskur |
Menntun | Fjöltækniháskólinn í Lvív |
Flokkur | Samtök úkraínskra þjóðernissinna (OÚN) |
Maki | Jaroslava Bandera |
Börn | 3 |
Undirskrift | |
![]() |
Loka
Arfleifð og persóna Stepans Bandera eru afar umdeild í Úkraínu. Sumir Úkraínumenn, aðallega í vesturhluta landsins, líta á hann sem þjóðhetju sem lét lífið fyrir sjálfstæðisbaráttu landsins, en í austurhluta Úkraínu, í Póllandi, Rússlandi og Ísrael er hans fyrst og fremst minnst sem samstarfsmanns nasista, sem fjöldamorðingja og sem stríðsglæpamanns.