Snípur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Snípurinn er hluti af kynfærum kvenkyns spendýra. Sýnilegi hluti snípsins sést þar sem innri skapabarmarnir mætast, fyrir ofan þvagrásaropið. Snípurinn er afar næmur og er helsta örvunarsvæði píkunnar, í snípshúfunni er áætlað að séu um 8.000 taugaendar.[1]
- Snípa (fleirtala snípur) er einnig heiti fugla af nokkrum ættkvíslum snípuættar.
Snípurinn myndast út frá ákveðnum vef í fóstri sem kallast kynhnjótur. Ef fóstrið er útsett fyrir karlhormónum verður kynhnjóturinn að typpi, annars verður hann að sníp.