![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/b3/Thingvellir_009.jpg/640px-Thingvellir_009.jpg&w=640&q=50)
Skjaldbreiður
fjall á Suðurlandi á Íslandi / From Wikipedia, the free encyclopedia
Staðreyndir strax
Skjaldbreiður | |
![]() | |
Hæð | 1.060 metrar yfir sjávarmáli |
Staðsetning | Þingvellir |
Fjallgarður | Enginn |
Loka
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/fc/Iceland_from_above_%2819575624563%29.jpg/640px-Iceland_from_above_%2819575624563%29.jpg)
Skjaldbreiður er 1.060 m há dyngja á Íslandi. Skjaldbreiður myndaðist í eldgosi fyrir um 9000 árum síðan en í sama gosi myndaðist umgjörð Þingvallavatns. Gígurinn er um 300 m í þvermál.
Fjallið er fagurformaður hraunskjöldur norðaustur af Þingvallasveit og sést hann mjög vel frá útsýnispallinum hjá upplýsingamiðstöð Þjóðgarðsins á Þingvöllum.
Skjaldbreiður er önnur stærsta dyngja landsins. Uppi á háfjallinu er mikill og djúpur gígur, um 300 m að þvermáli og u.þ.b. 50 m djúpur.[1]
Vel þekkt er kvæði Jónasar Hallgrímssonar Fjallið Skjaldbreiður.