![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/7d/Dagr_by_Arbo.jpg/640px-Dagr_by_Arbo.jpg&w=640&q=50)
Hrímfaxi og Skinfaxi
From Wikipedia, the free encyclopedia
Skinfaxi og Hrímfaxi í norrænni goðafræði eru hestar Dags og Nætur sem ríða umhverfis jörðina. Skinfaxi lýsir upp daginn, Hrímfaxi veldur morgundögginni.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/7d/Dagr_by_Arbo.jpg/640px-Dagr_by_Arbo.jpg)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/db/Peter_Nicolai_Arbo_-_Natten_-_Nasjonalmuseet_-_NG.M.03666.jpg/640px-Peter_Nicolai_Arbo_-_Natten_-_Nasjonalmuseet_-_NG.M.03666.jpg)
Þeim er svo lýst í Gylfaginningu:
Þá tók Alföður Nótt og Dag, son hennar, og gaf þeim tvo hesta og tvær kerrur og setti þau upp á himin, að þau skulu ríða á hverjum tveim dægrum umhverfis jörðina. Ríður Nótt fyrri þeim hesti er kallaður er Hrímfaxi, og að morgni hverjum döggvir hann jörðina með méldropum sínum. Sá hestur er Dagur á heitir Skinfaxi og lýsir allt loft og jörðina af faxi hans. |