Matvælaráðuneyti Íslands, áður þekkt sem Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti Íslands eða Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti er eitt af 12 ráðuneytum Stjórnarráðs Íslands. Æðsti yfirmaður var eitt sinn sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og æðsti embættismaður þess var ráðuneytisstjóri.

Staðreyndir strax Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið, Stofnár ...
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið
Stofnár 2008[1]
Fjárveiting 18,6 milljarðar króna (2011)
Staðsetning Skúlagata 4
150 Reykjavík
Loka

Árið 2012 var það sameinað inn í Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, en undir því eru starfandi tveir ráðherrar: sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.[2]

Árið 2021 var nafninu breytt í matvælaráðuneytið.

Samkvæmt reglugerð um Stjórnarráð Íslands[3] fór ráðuneytið með þau mál er varða:

Sjávarútveg

  • Rannsókn, verndun og nýtingu fiskistofna og annarra lifandi auðlinda hafsins og hafsbotnsins, sem og stjórnun svæða þar sem þær eru nýtanlegar.
  • Eftirlit með verndun og nýtingu fiskistofna og annarra lifandi auðlinda hafsins og hafsbotnsins, sem og stjórnun svæða þar sem þær eru nýtanlegar.
  • Rannsóknir og eftirlit með framleiðslu og innflutningi sjávarafurða.
  • Eldi nytjastofna sjávar.
  • Stuðning við rannsóknir, þróun og nýsköpun í sjávarútvegi.
  • Verðlagsstofu skiptaverðs og verðlagsráð sjávarútvegsins.
  • Þróunarsjóð sjávarútvegsins.

Landbúnað

  • Rannsóknir og eftirlit í landbúnaði.
  • Nytjaskógrækt á bújörðum og landshlutaverkefni í skógrækt.
  • Jarðir í eigu og umsjá ríkisins, þ.m.t. kirkjujarðir.
  • Landnotkun í þágu landbúnaðar og önnur jarða- og ábúðarmál.
  • Áveitur og framræslu.
  • Framleiðslu- og markaðsmál í landbúnaði, inn- og útflutning landbúnaðarafurða.
  • Inn- og útflutning dýra og plantna og erfðaefnis þeirra, varðveislu erfðaauðlinda í landbúnaði og yrkisrétt.
  • Aðbúnað búfjár og heilbrigði dýra, varnir gegn dýrasjúkdómum, gæði og heilnæmi aðfanga og landbúnaðarafurða.
  • Veiði í ám og vötnum, eldi vatnadýra og önnur veiðimál.
  • Lán og stuðning við nýsköpun og starfsemi á sviði landbúnaðar.
  • Hagrannsóknir og áætlunargerð í landbúnaði.

Matvæli, matvælaeftirlit og matvælarannsóknir.

Sjá einnig

Tilvísanir

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.