Sjáland
ein af eyjum Danmerkur / From Wikipedia, the free encyclopedia
Sjáland (danska Sjælland) er stærsta eyja Danmerkur (að undanskildu Grænlandi), með meira en tvær milljónir íbúa sem flestir búa í höfuðborginni, Kaupmannahöfn og nágrannabyggðum. Sjáland er 7.031 km² að stærð.
- Sjá líka Sjáland (Holland).
Eyrarsund skilur milli Sjálands og Svíþjóðar austan megin en Eyrarsundsbrúin liggur þar yfir. Vestan megin skilur Stórabelti milli Sjálands og Fjóns, en Stórabeltisbrúin liggur þar yfir. Heiti eyjarinnar merkir ekki 'sjáfarland' eins og ætla mætti. Sjáland er einungis afbökun á Selund, og er helst giskað að það merki selaeyja.
Í núverandi héraðsskiptingu Danmerkur skiptist Sjáland milli Höfuðborgarsvæðis og Sjálandshéraðs.