Sint Maarten
From Wikipedia, the free encyclopedia
Sint Maarten er ríki sem nær yfir syðri 40% eyjunnar Saint Martin í Antillaeyjaklasanum en norðurhlutinn er franska nýlendan Saint-Martin. Ríkið er hluti af Konungsríkinu Hollandi. Fyrir 2010 var svæðið hluti af Hollensku Antillaeyjum. Það er oft sagt vera hluti af Hollensku Vestur-Indíum ásamt öðrum hollenskum yfirráðasvæðum í Karíbahafi.
Sint Maarten | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Semper progrediens | |
Þjóðsöngur: O Sweet Saint Martin's Land | |
Höfuðborg | Philipsburg |
Opinbert tungumál | hollenska, enska |
Stjórnarfar | Þingræði |
Konungur | Vilhjálmur Alexander |
Landstjóri | Eugene Holiday |
Forsætisráðherra | Silveria Jacobs |
Heimastjórn | (Konungsríkið Holland) |
• Upplausn Hollensku Antillaeyja | 10. október 2010 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
34 km² ~0 |
Mannfjöldi • Samtals (2019) • Þéttleiki byggðar |
216. sæti 41.486 1.221/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2014 |
• Samtals | 0,3658 millj. dala |
• Á mann | 8.817 dalir |
Gjaldmiðill | antillaeyjagyllini |
Tímabelti | UTC-4 |
Þjóðarlén | .sx |
Landsnúmer | ++1 721 |
Kristófer Kólumbus nefndi eyjuna eftir Marteini helga þar sem hann kom auga á hana á Marteinsmessu 11. nóvember. Hann tók þó ekki land á eyjunni. Hollendingar stofnuðu þar nýlendu árið 1631. Eyjunni var skipt milli Frakka og Hollendinga með Condordia-sáttmálanum árið 1648. Báðir hlutarnir voru undirlagðir plantekrubúskap með afrískum þrælum. Þrælahald var lagt niður um miðja 19. öld. Hollendingar gerðu sinn hluta að fríhöfn árið 1939 sem jók mjög ferðamennsku til eyjarinnar.
Íbúafjöldi Sint Maarten óx hratt á síðari hluta 20. aldar og íbúar eru nú um 30.000. Höfuðborgin er Philipsburg en stærsta borgin er Lower Prince's Quarter með um 8000 íbúa. Flugvöllurinn Princess Juliana International Airport er einn helsti flugvöllur Kulborðseyja. Sint Maarten er ekki hluti af Evrópusambandinu.