Santa Fe er höfuðborg fylkisins Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum. Hún er fjórða stærsta borg fylkisins og höfuðstaður samnefndrar sýslu. Íbúar borgarinnar voru um 85.000 árið 2018.
Santa Fe | |
---|---|
Hnit: 35°40′2″N 105°57′52″V | |
Land | Bandaríkin |
Fylki | Nýja-Mexíkó |
Sýsla | Santa Fe |
Stjórnarfar | |
• Borgarstjóri | Alan Webber (D) |
Flatarmál | |
• Samtals | 135,57 km2 |
Mannfjöldi (2020) | |
• Samtals | 87.505 |
• Þéttleiki | 646,83/km2 |
Tímabelti | UTC−7 (MST) |
• Sumartími | UTC−6 (MDT) |
Póstnúmer | 87501–87509, 87540, 87592, 87594 |
Vefsíða | santafenm |
Þar sem borgin stendur voru áður nokkur þorp púeblóindíána, stofnuð í kringum árið 1000. Santa Fe-áin rann þá allt árið um kring en er nú árstíðabundið vatnsfall. Héraðið var hluti af Nýja Spáni og landstjórinn Juan de Oñate stofnaði héraðið Santa Fé de Nuevo México árið 1598 með höfuðstað í San Juan de los Caballeros norðan við núverandi borg. Annar landstjóri Nýju Mexíkó, Pedro de Peralta, stofnaði núverandi borg árið 1610 og gerði hana að höfuðborg. Púeblóindíánar ráku Spánverja úr borginni í Púeblóuppreisninni 1680-92. Þegar Mexíkó fékk sjálfstæði var Santa Fe áfram fylkishöfuðborg og 1848 varð hún hluti af Bandaríkjunum ásamt allri Nýju-Mexíkó.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.