![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/35/International_leaders_sign_joint_statement_at_COP26_%252851649202102%2529_%2528Suluhu_crop%2529.jpg/640px-International_leaders_sign_joint_statement_at_COP26_%252851649202102%2529_%2528Suluhu_crop%2529.jpg&w=640&q=50)
Samia Suluhu
6. og núverandi forseti Tansaníu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Samia Suluhu Hassan (f. 27. janúar 1960) er tansönsk stjórnmálakona úr flokknum Chama Cha Mapinduzi og núverandi forseti Tansaníu. Hún var áður varaforseti landsins eftir að hafa náð kjöri ásamt forsetaframbjóðandanum John Magufuli árið 2015. Mugufuli og Suluhu náðu endurkjöri árið 2020. Eftir að Magufuli lést í embætti í mars 2021 tók Suluhu við af honum og varð fyrst kvenna til að gegna embætti forseta Tansaníu.[1][2]
Samia Suluhu | |
---|---|
![]() Suluhu árið 2021. | |
Forseti Tansaníu | |
Núverandi | |
Tók við embætti 19. mars 2021 | |
Forsætisráðherra | Kassim Majaliwa |
Varaforseti | Philip Mpango |
Forveri | John Magufuli |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 27. janúar 1960 (1960-01-27) (64 ára) Soldánsdæminu Sansibar |
Þjóðerni | Tansönsk |
Stjórnmálaflokkur | Chama Cha Mapinduzi |
Maki | Hafidh Ameir (g. 1978) |
Börn | 4 |
Háskóli | Háskólinn í Mzumbe Háskólinn í Manchester Opni háskólinn í Tansaníu |
Áður en Suluhu varð varaforseti sat hún á tansanska þinginu fyrir kjördæmið Makunduchi frá 2010 til 2015 og var jafnframt ríkisráðherra við skrifstofu varaforsetans frá 2010 til 2015. Þar áður hafði hún verið ráðherra í héraðsstjórn Sansibar á stjórnartíð Amani Karume. Árið 2014 var hún kjörin varaformaður tansanska stjórnlagaráðsins sem falið var að leggja drög að nýrri stjórnarskrá.