Sósíalíski einingarflokkurinn
Kommúnískur stjórnmálaflokkur og stjórnarflokkur Austur-Þýskalands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Sósíalíski einingarflokkur Þýskalands (þýska: Sozialistische Einheitspartei Deutschlands eða SED) var kommúnískur stjórnmálaflokkur í Alþýðulýðveldinu Þýskalandi. Sósíalíski einingarflokkurinn leiddi svokallaða þjóðfylkingu (þýska: Nationale Front) sem var bandalag stjórnmálaflokka sem fengu að starfa með náð austur-þýskra stjórnvalda. Þar sem Sósíalíski einingarflokkurinn var eini stóri stjórnmálaflokkurinn sem var leyfður fór flokkurinn í raun fyrir flokksræði í Austur-Þýskalandi og hafði tögl og hagldir á öllum pólitískum völdum í landinu.
Staðreyndir strax Sósíalíski einingarflokkur Þýskalands Sozialistische Einheitspartei Deutschlands ...
Sósíalíski einingarflokkur Þýskalands Sozialistische Einheitspartei Deutschlands | |
---|---|
Aðalritari | Wilhelm Pieck og Otto Grotewohl (1946-1950) Walter Ulbricht (1950-1971) Erich Honecker (1971-1989) Egon Krenz (1989) |
Stofnár | 21. apríl 1946 |
Samruni eftirtalinna hreyfinga | Austur-þýskra deilda Kommúnistaflokksins og Jafnaðarmannaflokksins |
Lagt niður | 16. desember 1989 |
Gekk í | Lýðræðislega sósíalistaflokkinn |
Félagatal | 2.260.979 (1989)[1] |
Stjórnmálaleg hugmyndafræði |
Kommúnismi Marx-lenínismi Stalínismi (fyrir 1953) |
Einkennislitur | Rauður |
Loka