Rudolf Hilferding
From Wikipedia, the free encyclopedia
Rudolf Hilferding (f. 1877, d. 1941) var þýskur stjórnmálamaður og hagfræðingur.
Rudolf Hilferding | |
---|---|
![]() Rudolf Hilferding árið 1928. | |
Fjármálaráðherra Þýskalands | |
Í embætti 13. ágúst 1923 – október 1923 | |
Kanslari | Gustav Stresemann |
Forveri | Andreas Hermes |
Eftirmaður | Hans Luther |
Í embætti 29. júní 1928 – 21. desember 1929 | |
Kanslari | Hermann Müller |
Forveri | Heinrich Köhler |
Eftirmaður | Paul Moldenhauer |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 10. ágúst 1877 Leopoldstadt, þýska keisaraveldinu |
Látinn | 11. febrúar 1941 (63 ára) París, Frakklandi |
Þjóðerni | Þýskur |
Stjórnmálaflokkur | Jafnaðarmannaflokkurinn (SPD) |
Maki | Rosa Hilferding |
Háskóli | Vínarháskóli |
Hilferding var sonur auðugra gyðinga[1] og fæddist í Vínarborg í Austurríki 10. ágúst árið 1877. Faðir hans, Emil Hilferding, starfaði sem einkaþjónn og móðir hans Anna Hilferding áttu son sinn og yngri systir hans Mariu. Hilferding fór í skóla á ungum aldri og var talinn meðal nemandi í grunnskóla sem gaf honum kost að fara í háskóla þar sem hann hlaut doktorsgráðu eftir að hafa lært læknisfræði í Vínarborg.[2] Þegar hann var að læra læknisfræði heillaðist hann að sósíalisma, og tengdist ýmsum marxistum og sósíalistum, meðal annars Otto Bauer, Karl Kautsky og August Bebel. Rudolf Hilferding var einn mikilvægasti kenningasmiður marxista snemma á 19. öld ásamt Lenín, Búkharín og Rosu Luxemburg, og einn klárasti nemandinn í fjármálahagfræði meðal þeirra.[3]