Rolling Stone
Bandarískt tímarit / From Wikipedia, the free encyclopedia
Fyrir ensku hljómsveitina, sjá The Rolling Stones.
Rolling Stone er bandarískt tónlistar-, stjórnmála- og menningartímarit gefið út hálfsmánaðarlega. Tímartið var stofnað í San Francisco árið 1967 af Jann Wenner og Ralph J. Gleason. Wenner er enn ritstjóri og útgefandi þess í dag. Hann fékk 7.500 dollara að láni hjá fjölskyldu sinni til að setja tímaritið á markað.