From Wikipedia, the free encyclopedia
Roger Meddows Taylor OBE (fæddur 26. júlí 1949) er breskur tónlistamaður, söngvari, lagasmiður og fjölhljóðfæraleikari, best þekktur sem trommarinn úr rokkhljómsveitinni Queen.[1] Sem trommari vakti Roger athygli snemma á ferli sínum fyrir sitt sérstaka hljóð. [2] Hann var kosinn áttundi besti trommari í sögu klassísks rokks í könnun sem haldin var af Planet Rock árið 2005.[3]
Roger Taylor | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fæddur | Roger Meddows Taylor 26. júlí 1949 |
Ár virkur | 1968 - nútíð |
Stefnur | Rokk |
Hljóðfæri | trommur, söngur |
Útgáfufyrirtæki | EMI, Elektra, Capitol, Parlophone, Hollywood, Virgin EMI |
Samvinna | Queen, Queen + Paul Rodgers, Queen + Adam Lambert, The Cross, Smile, Felix & Arty, Yoshiki, Lydia Canaan |
Vefsíða | rogertaylorofficial.com |
Sem lagasmiður lagði Taylor til lög í plötur Queen frá upphafi og samdi að minnsta kosti eitt lag á hverri plötu. Hann söng oft aðalrödd á sínum eigin lögum. Hann skrifaði eða skrifaði ásamt öðrum þrjú lög sem komust í fyrsta sæti á vinsældarlistum í Bretlandi („These Are The Days of Our Lives“, [4]„Innuendo“ og „Under Pressure“) ásamt fimm öðrum vinsælum lögum („Radio Ga Ga“, „A Kind of Magic“, „Heaven for Everyone“, „Breakthru“, og „The Invisible Man“).[5]
Hann hefur unnið með tónlistarmönnum á borð við Eric Clapton, Roger Waters, Roger Daltrey, Robert Plant, Phil Collins, Genesis, Jimmy Nail, Kansas, Elton John, Gary Numan, Shakin' Stevens, Foo Fighters, Al Stewart, Steve Vai, Toshiki, Cyndi Almouzni og Bon Jovi. Sem framleiðandi hefur hann framleitt plötur með Virginia Wolf, Jimmy Nail og Magnum.
Auk vinnu hans sem trommari er Taylor vel þekktur fyrir falsettu raddsvið sitt. Hann spilaði stundum á hljómborð, gítar og bassa í sínum eigin lögum. Á níunda áratugnum stofnaði hann hljómsveit sem hann starfaði í samhliða Queen, the Cross. Þar var hann aðalsöngvari og gítarleikari.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.