Robert Fico
Forsætisráðherra Slóvakíu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Robert Fico (f. 15. september 1964) er slóvakískur stjórnmálamaður. Hann hefur verið forsætisráðherra Slóvakíu frá 2023 og gegndi embættinu áður frá 2006 til 2010 og frá 2012 til 2018. Fico stofnaði stjórnmálaflokkinn Stefnu – sósíaldemókrata (Smer–SD) árið 1999 og hefur verið leiðtogi flokksins frá upphafi. Fico var kjörinn á þing í fyrsta sinn árið 1992 (þá í Tékkóslóvakíu) og myndaði fyrstu ríkisstjórn sína eftir sigur Smer–SD árið 2006. Alls hefur Fico verið forsætisráðherra Slóvakíu í rúman áratug og er því þaulsætnasti forsætisráðherra í sögu landsins. Stjórnmálastefnur Ficos eru gjarnan taldar popúlískar.
Staðreyndir strax Forsætisráðherra Slóvakíu, Forseti ...
Robert Fico | |
---|---|
Forsætisráðherra Slóvakíu | |
Núverandi | |
Tók við embætti 25. október 2023 | |
Forseti | Zuzana Čaputová Peter Pellegrini |
Forveri | Ľudovít Ódor |
Í embætti 4. apríl 2012 – 22. mars 2018 | |
Forseti | Ivan Gašparovič Andrej Kiska |
Forveri | Iveta Radičová |
Eftirmaður | Peter Pellegrini |
Í embætti 4. júlí 2006 – 8. júlí 2010 | |
Forseti | Ivan Gašparovič |
Forveri | Mikuláš Dzurinda |
Eftirmaður | Iveta Radičová |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 15. september 1964 (1964-09-15) (59 ára) Topoľčany, Tékkóslóvakíu |
Þjóðerni | Slóvakískur |
Stjórnmálaflokkur | Stefna – sósíaldemókratar (1999–) |
Maki | Svetlana Svobodová (g. 1986) |
Börn | 1 |
Undirskrift |
Loka