Roald Amundsen
From Wikipedia, the free encyclopedia
Roald Engelbregt Gravning Amundsen (16. júlí, 1872 – 18. júní?, 1928) var norskur landkönnuður sem varð frægur fyrir könnun heimskautasvæðanna. Hann stýrði Suðurskautsleiðangrinum 1910–1912, sem var sá fyrsti til að ná Suðurpólnum.
Hann var af fjölskyldu norskra útgerðarmanna og skipstjóra í Borge nálægt Osló í Noregi. Hann heyrði um ferð Fridtjof Nansens yfir Grænland árið 1888 og las líka æviágrip breskra landkönnuða og ákvað að verða sjálfur landkönnuður.
Amundsen lést í flugslysi árið 1928 þegar hann tók þátt í björgunarleiðangri við Norðurpólinn í leit að eftirlifendum ítalska loftsskipsins Italia.