Rammstein
From Wikipedia, the free encyclopedia
Rammstein er þýsk þungarokkhljómsveit sem stofnuð var árið 1994 í Berlín. Í tónlist Rammstein gætir mikilla áhrifa frá raftónlist og iðnaðarrokki. Einnig eru áhrif frá slóvensku sveitinni Laibach. Rammstein er kennd við bylgju rokks í Þýskalandi og Austurríki sem kennd er við Neue Deutsche Härte, nýju þýsku hörkuna. Textar Rammstein eru nær eingöngu á þýsku en nokkrir eru á ensku.