![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/00/%25D9%2587%25D9%2584%25D8%25A7%25D9%2584_%25D8%25B1%25D9%2585%25D8%25B6%25D8%25A7%25D9%2586.jpg/640px-%25D9%2587%25D9%2584%25D8%25A7%25D9%2584_%25D8%25B1%25D9%2585%25D8%25B6%25D8%25A7%25D9%2586.jpg&w=640&q=50)
Ramadan
From Wikipedia, the free encyclopedia
Ramadan (arabíska: رمضان), sem er níundi mánuður íslamska ársins er föstumánuður Múslima. Fastan er haldin á hverjum degi allan mánuðinn frá sólarupprás til sólseturs.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/00/%D9%87%D9%84%D8%A7%D9%84_%D8%B1%D9%85%D8%B6%D8%A7%D9%86.jpg/640px-%D9%87%D9%84%D8%A7%D9%84_%D8%B1%D9%85%D8%B6%D8%A7%D9%86.jpg)
Fastan er þó einungis eitt af því sem ber að forðast eða sérstaklega framkvæma þennan miklvæga mánuð í trúarlífi múslima. Forðast skal að drekka eða borða og einnig allt kynlíf frá sólarrás (fajr) fram til sólseturs (maghrib). Meðan Ramadan stendur yfir er múslimum ætlað að leggja enn meir á sig að fylgja kenningum íslam og taka afstöðu gegn ofbeldi, reiði, öfund, losta og illu umtali. Að fasta er sagt hreinsa hugann og auðvelda einbeitingu að Guði.
Að fasta undir Ramadan er ekki ætlað öllum. Börn sem ekki eru orðin kynþroska er ekki ætlað að fasta þó svo að sum geri það. Þeir sem eru sjúkir eða á annan hátt veikburða eru undanteknir frá föstunni og eins er með gamalt fólk. Einnig er hafandi konum eða konum með börn á brjósti ekki ætlað að fasta.