Ríkisþinghúsið í Berlín
From Wikipedia, the free encyclopedia
Ríkisþinghúsið í Berlín (Reichstagsgebäudeⓘ), einnig þekkt sem Reichstag, er ein af þekktustu byggingum Þýskalands. Það var þinghús Þýskalands frá 1894 til 1933, og svo aftur frá 1999.
Þegar húsið var byggt réð heimsvaldastefna keisaratímabilsins í Þýskalandi. Henni fylgdi síðan heimsstyrjöld, og síðan uppreisn. Þýsku lýðveldi, oftast kennt við borgina Weimar, var lýst yfir í þinghúsinu 1918 en fór út um þúfur fimmtán árum seinna þegar Adolf Hitler komst til valda. Nasistatímanum lauk þegar Sovétmenn drógu rauða fánann að húni á rústum þinghússins í lok seinni heimsstyrjaldarinnar árið 1945. Bonn var frá endalokum seinna stríðs höfuðborg Vestur-Þýskalands og þar hafði þing og ríkisstjórn aðsetur eftir sameiningu þýsku ríkjanna. Það var hins vegar á tröppum þinghússins í Berlín sem sameiningu Þjóðverja í eina þjóð á nýjan leik var lýst yfir 3. október 1990.