Polemon
From Wikipedia, the free encyclopedia
Polemon eða Pólemon (á forngrísku: Πολέμων; dáinn 270 eða 269 f.Kr.) frá Aþenu var platonskur heimspekingur og fjórði skólastjóri Akademíunnar frá 314 eða 313 til 270 eða 269 f.Kr. Hann var nemandi Xenokratesar og taldi að heimspeki ætti að stunda fremur en að læra hana. Polemon taldi að hin æðstu gæði væru fólgin í því að lifa í samræmi við náttúruna.
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir yfirlit yfir aðrar merkingar „Polemon“