Trjátegund í flokki barrtrjáa From Wikipedia, the free encyclopedia
Fjallafura (fræðiheiti Pinus mugo) er furutegund sem vex í hátt til fjalla í Evrópu og finnst í Pýreneafjöllum, Ölpunum, Erzgebirge, Karpatafjöllum, norður Apennínafjöllum og fjöllum á Balkanskaga í 1000 m til 2200 m hæð en sums staðar í 200 m hæð í Þýskalandi og Póllandi og upp í allt að 2700 m í suðurhluta Búlgaríu og í Pýrenaafjöllum.
Fjallafura | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Fjallafura, P. mugo ssp. mugo | ||||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Pinus mugo Turra | ||||||||||||||||
Það eru tvær undirtegundir:
Fjallafura/bergfura er mjög vindþolin, ljóselsk og hægvaxta[1]. Bergfura er mikið notuð í görðum, sérstaklega lágvaxna afbrigðið subsp. mugo.
Hún myndar blendinginn P. × rhaetica með skógarfuru þar sem þær vaxa saman. P. mugo er talið til ágengrar tegundar á hálendi Nýja Sjálands.
Bergfura/fjallafura hefur verið ræktuð á Íslandi síðan í kringum 1900. En á árunum 1899-1913 var hún gróðursett í reiti á Þingvöllum og á Grund í Eyjafirði [2]. Bergfura verður allt að 10-15 metra há hérlendis.[3] Hún vex víða um land, kelur sjaldan en getur verið viðkvæm fyrir sveppasjúkdómnum (furubikar). [4]
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.