![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/e8/Recife_Antigo.jpg/640px-Recife_Antigo.jpg&w=640&q=50)
Pernambuco
From Wikipedia, the free encyclopedia
Pernambuco er eitt 27 fylkja Brasilíu. Það er staðsett í Norðaustur-Brasilíu og á landamæri að Paraíba og Ceará í norðri, Atlantshafi í austri, Alagoas og Bahia í suðri og Piauí í vestri. Það er 98.311 km² að flatarmáli (aðeins smærri en Ísland). Fernando de Noronha eyjaklasinn er einnig hluti landsvæðis fylkisins. Recife er höfuðborg (aðsetur er Palácio do Campo das Princesas, eða Höll Prinsessannalóðarinnar).
Pernambuco | |
---|---|
![]() | |
Staðsetning innan Brasilíu | |
![]() | |
Fylkisfáni | Skjaldamerki |
![]() |
![]() |
Grundvallarupplýsingar | |
stærð: | 98.311,6 km² |
íbúafjöldi: | 8.796.032 (2010) |
íbúar á hvern ferkílómetra: | 89/km² |
Stjórnmál | |
Borgarstjóri: | Eduardo Campos (PSB) |
næst kosið: | 2011 |
Vefsíða: | www.pe.gov.br Geymt 17 júní 2021 í Wayback Machine |
Óljóst er hvaðan nafn fylkisins kemur. Sumir fræðimenn fullyrða að það sé nafn sem innfæddu mennirnir notuðu fyrir brasilíuvið (l. Caesalpinia echinata). Ein kenning er að það stafi af forntupíi Paranã-Puca, sem þýðir „þar sem hafið brýtur”, fyrst meirihluti strandar er verndaður með rifsveggjum.
Stærstu borgirnar eru Recife, Jaboatão dos Guararapes, Olinda, Paulista, Caruaru, Petrolina, Cabo de Santo Agostinho, Garanhuns og Vitória do Santo Antão.