Pepsideild karla í knattspyrnu 2011
From Wikipedia, the free encyclopedia
Árið 2011 var Íslandsmótið í knattspyrnu haldið í 100. skipti. Þór kom upp eftir átta ára fjarveru ásamt Víkingum, sem höfðu fallið 2007 á meðan Breiðablik reyndi að verja sinn fyrsta titil.
Staðreyndir strax Stofnuð, Núverandi meistarar ...
| |
Stofnuð | 2011 |
---|---|
Núverandi meistarar | KR |
Föll | Þór Víkingur |
Spilaðir leikir | 132 |
Markahæsti leikmaður | 15 mörk Garðar Jóhannsson |
Tímabil | 2010 - 2012 |
Loka
KR-ingar unnu sinn 25. Íslandsmeistaratitil og hafa með því unnið fjórðung allra Íslandsmeistaratitla frá upphafi. Þetta þýddi að KR-ingar hömpuðu titlinum á 100. Íslandsmótinu, en fyrir höfðu þeir hrósað sigri á 1. og 50. Íslandsmótinu. Báðir nýliðarnir féllu, en það var í annað skiptið í röð sem það gerðist.