Paul Rusesabagina
Rúandskur fyrrum hótelstjóri / From Wikipedia, the free encyclopedia
Paul Rusesabagina (f. 15. júní 1954) er rúandskur stjórnmálamaður og fyrrverandi hótelstjóri. Hann er þekktur fyrir aðgerðir sínar við að bjarga Tútsum á tíma þjóðarmorðsins í Rúanda árið 1994. Rusesabagina hefur í seinni tíð gagnrýnt forseta Rúanda, Paul Kagame, og hann var einn stofnenda stjórnarandstöðuflokksins Mouvement rwandais pour le changement démocratique.[1] Rusesabagina var handtekinn árið 2020 vegna meintra tengsla sinna við skæruliðasamtökin Þjóðfrelsisfylkingu Rúanda (fr. Front de libération nationale).