Notandi:Andrimm/sandbox
From Wikipedia, the free encyclopedia
Brimbrettarokk (Surf Rock) er tegund vinsællar tónlistar sem tengist brimbrettamenningu, sem á aðallega rætur sínar að rekja til Orange sýslu og fleiri staða í Suður-Kaliforníu. Brimbrettarokk var sérstaklega vinsælt á árunum 1961-1966. Frumkvöðull þess var gítarleikarinn Dick Dale, en hann er af mörgum talinn hafa gefið út fyrsta brimbrettarokk lagið. Frægasta hljómsveitin sem fellur undir þessa tegund tónlistar er hljómsveitin The Beach Boys, sem er flestum kunnug. Brimbrettarokk skiptist í þrjá flokka en það getur ýmist verið spilað einungis á hljóðfæri (instrumental), þ.e. með engum söng, eða með vel útsettum harmónískum röddum ásamt hljóðfærum og síðast en ekki síst er til svokallað „Hot rod“ rokk, sem fellur víst undir brimbrettarokkið. Aðaleinkenni brimbrettarokksins eru þó rennblauta bergmál (reverb) gítarhljómsins sem eiga að hljóma eins og öldur hafsins.[1] Brimbrettarokk hefur aldrei náð neinum hæðum á Íslandi og þekkist ekki til neinna íslenskra hljómsveita sem eru þekktar fyrir að spila einungis brimbrettarokk en eru þó til dæmi um sveitir sem eru undir einhverjum áhrifum þess.
Brimbrettarokk | |
---|---|
Uppruni | Suður-Kalifornía |
Hljóðfæri | Gítar, bassi, trommur |
Tengdar stefnur | |
Vagg og velta, blús |