![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/6d/NordenFlag.jpg/640px-NordenFlag.jpg&w=640&q=50)
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn
From Wikipedia, the free encyclopedia
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (NOPEF) er sjóður sem starfar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar um umhverfismál og er í umsjá Norræna umhverfisfjármögnunarfélagsins. Meginmarkmiðið með starfsemi NOPEF er að styrkja alþjóðlega samkeppnishæfni lítilla og meðalstórra fyrirtækja á Norðurlöndum.
![Mynd af fánum Norðurlandanna](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/6d/NordenFlag.jpg/640px-NordenFlag.jpg)
Sjóðurinn hvetur til þátttöku norrænna fyrirtækja í verkefnum á alþjóðavettvangi, með áherslu á verkefni tengd umhverfisvænum lausnum.[1] Það gerir hann með því að veita hagstæð, vaxtalaus lán og styrki til undirbúnings verkefna í löndum utan EES.
Norðurlöndin stofnuðu NOPEF árið 1982. Á árunum 1982- 2020 hafa um 3.000 verkefni fengið fjármögnun frá sjóðnum að heildarupphæð yfir 100 milljónir evra. Það hefur skilað sér til meira en 1.000 rótgróinna fyrirtækja utan Norðurlanda.[2]