Evrópska efnahagssvæðið
Samstarf ESB og flestra EFTA landa um sameiginlegan innri markað / From Wikipedia, the free encyclopedia
Evrópska efnahagssvæðið (EES) er sameiginlegt markaðssvæði 31 ríkis í Evrópu sem komið var á með EES-samningnum og tók formlega gildi 1. janúar 1994. Aðild að EES eiga öll 28 aðildarríki Evrópusambandsins, sambandið sjálft og 3 aðildarríki Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA). Sviss er eina EFTA-ríkið sem stendur utan EES þar sem að aðild að samningnum var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu þar í landi.
EES-samningurinn veitir EFTA-ríkjunum Íslandi, Liechtenstein og Noregi aðgang að innri markaði Evrópusambandsins án þess að þau þurfi að gerast fullir meðlimir í sambandinu. Fjórfrelsið svokallaða gildir á öllu svæðinu en það felur í sér frjáls vöru- og þjónustuviðskipti, frjálsa fjármagnsflutninga og sameiginlegan vinnumarkað. Að auki kveður EES-samningurinn á um samvinnu EES-ríkjanna á sviði félagsmála, jafnréttismála, neytendamála, umhverfismála, menntamála, vísinda- og tæknimála o.fl.