Rúmenskur kommúnistaleiðtogi og einræðisherra (1967-1989) From Wikipedia, the free encyclopedia
Nicolae Ceaușescu (26. janúar 1918 – 25. desember 1989) var forseti Rúmeníu frá 1967 til 1989 og aðalritari rúmenska kommúnistaflokksins frá 1965 til 1989.
Nicolae Ceaușescu | |
---|---|
Forseti Rúmeníu | |
Í embætti 28. mars 1974 – 22. desember 1989 | |
Forsætisráðherra | Manea Mănescu Ilie Verdeț Constantin Dăscălescu |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | Ion Iliescu |
Forseti ríkisráðs Rúmeníu | |
Í embætti 9. desember 1967 – 22. desember 1989 | |
Forsætisráðherra | Ion Gheorghe Maurer Manea Mănescu Ilie Verdeț Constantin Dăscălescu |
Forveri | Chivu Stoica |
Eftirmaður | Embætti lagt niður |
Aðalritari rúmenska kommúnistaflokksins | |
Í embætti 22. mars 1965 – 22. desember 1989 | |
Forveri | Gheorghe Gheorghiu-Dej |
Eftirmaður | Embætti lagt niður |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 26. janúar 1918 Scornicești, Rúmeníu |
Látinn | 25. desember 1989 (71 árs) Târgoviște, Rúmeníu |
Dánarorsök | Tekinn af lífi |
Stjórnmálaflokkur | Kommúnistaflokkur Rúmeníu |
Maki | Elena Petrescu (g. 1947–1989) |
Börn | Valentin, Zoia, Nicu |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Ceaușescu var virkur í kommúnistaflokknum frá unga aldri og komst upp raðir flokksins þegar Gheorghe Gheorghiu-Dej réð þar ríkjum. Eftir andlát Gheorghiu-Dej tók Ceaușescu við taumunum. Hann varð með tímanum að æ meiri harðstjóra og stjórnaði fjölmiðlum og málfrelsi. Leynilögregla hans Securitate var með þeim harðskeyttari í heiminum. Á 9. áratugnum skipaði Ceaușescu að úflutningur á landbúnaðar- og iðnaðarvörum yrði aukinn til að stemma stigu við erlendar skuldir. Í kjölfarið varð mikill skortur á mat, eldsneyti, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum og megn óánægja varð með stjórn hans.
Árið 1989 skipaði Ceaușescu öryggissveitum að skjóta á mótmælendur í borginni Timișoara en mótmælin breiddust út til höfðuðborgarinnar Búkarest í því sem kallaðist Rúmenska byltingin. Þar létust um 1000 manns. [1] Þegar átökin og mótmælin mögnuðust flýðu Ceaușescu og kona hans, Elena, í þyrlu frá forsetahöllinni. Síðar náðust þau og hlutu þau skjóta afgreiðslu herdómstóls og voru dæmd fyrir þjóðarmorð. Aftökusveit tók þau af lífi.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.