![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/b2/Netumbo_Nandi-Ndaitwah%2528cropped%2529.jpg/640px-Netumbo_Nandi-Ndaitwah%2528cropped%2529.jpg&w=640&q=50)
Netumbo Nandi-Ndaitwah
From Wikipedia, the free encyclopedia
Netumbo Nandi-Ndaitwah (f. 29. október 1952) er namibísk stjórnmálakona sem þriðji og núverandi varaforseti Namibíu, frá febrúar 2024.[1] Hún var áður aðstoðarforsætisráðherra Namibíu frá 2015 til 2024.[2] Hún er núverandi varaforseti stjórnarflokksins SWAPO og áætlað er að hún verði frambjóðandi flokksins í forsetakosningum Namibíu í nóvember 2024.[3] Hún hefur jafnframt verið utanríkis- og samvinnuráðherra frá desember 2022. Frá 2010 til desember 2012 var hún umhverfis- og ferðamálaráðherra. Nandi-Ndaitwah er meðlimur í stjórnmálaflokknum SWAPO og hefur setið á namibíska þinginu um árabil. Árið 2017 var hún kjörin varaforseti SWAPO á sjötta landsþingi flokksins. Hún er fyrsta konan til að gegna því embætti.
Staðreyndir strax Varaforseti Namibíu, Forseti ...
Netumbo Nandi-Ndaitwah | |
---|---|
![]() Netumbo Nandi-Ndaitwah árið 2015. | |
Varaforseti Namibíu | |
Núverandi | |
Tók við embætti 4. febrúar 2024 | |
Forseti | Nangolo Mbumba |
Forveri | Nangolo Mbumba |
Utanríkisráðherra Namibíu | |
Núverandi | |
Tók við embætti 4. desember 2012 | |
Forsætisráðherra | Hage Geingob Saara Kuugongelwa |
Forveri | Utoni Nujoma |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 29. október 1952 (1952-10-29) (71 árs) Onamutai, Suðvestur-Afríku (nú Namibíu) |
Þjóðerni | Namibísk |
Stjórnmálaflokkur | SWAPO |
Maki | Epaphras Denga Ndaitwah |
Háskóli | Keele-háskóli Glasgow Caledonian University |
Loka