From Wikipedia, the free encyclopedia
Netslóð er dæmi um staðlað gagnaauðkenni (e. URI). Veffang er í almennu tali netslóð sem vísar á vefsíðu en netslóðir geta vísað á margt fleira en vefsíður, t.d. skjalamöppur á FTP-þjóni og margmiðlunarefni sem veitt er um MMS-þjón.
Dæmi um hvernig slóð er brotin niður:
ftp://notandi:lykilorð@tildaem.is:992/farartaeki/bifreid?tegund=4dyra#framhluti \___/ \_____________/ \________/ \_/\_________________/\___________/\________/ | | | | | | | samskiptamáti innskráning hýsill port slóð beiðni tengill/brot
Flestir nota þó aðeins lítinn hluta af svona slóð við að heimsækja vefsíður á netinu, t.d. bara samskiptamáta- og hýsils-hlutana (e. host).
Dæmi um innslátt í vafra:
http://tildaem.is
Bygging netslóða segir til um hvernig slóðir eiga að vera byggðar upp og hvað gera eigi við þær.
Innskráning (e. login) er ekki mikið notuð á þann hátt sem hér birtist þar sem flestir vilja ekki að lykilorðið birtist í netslóðinni.
Hýsill (e. host) getur verið auðkenndur með IP-fangi (e. IP-Address) eða hýsilsnafni (e. host name). Hýsilsnafnið er venjulega DNS lén sem skiptist í tvo hluta; rótarlén (til dæmis .is) og Í dæminu að ofan er lénið "tildaem" og rótarlénið "is". Sérstakar skrifstofur sjá um úthlutun léna og stjórnar oft ein skrifstofa einu rótarléni. Á Íslandi er það ISNIC sem stjórnar úthlutun léna innan .is rótarlénsins. Rótarlénum er svo úthlutað af IANA (Internet Assigned Numbers Authority).
Port-hlutinn segir til um á hvaða porti skuli reyna að tengjast. HTTP-staðallinn notar port 80 og er það því sjálfgefna gildið í flestum vöfrum sleppi notandi að slá port-númer inn.
Slóðin segir til um hvaða gögn miðlarinn (hýsillinn) á að senda til biðlarans (notandans).
Beiðnar-hlutinn segir til um skilyrði sem gögnin skulu uppfylla.
Sé slóðar- og fyrirspurnar-hlutunum sleppt er náð í sjálfgefna síðu, sem skilgreind er af hýsli.
Tengill/brot segir til um hvar á síðunni eigi að byrja að birta gögnin.
Hér er algengri byggingu staðlaðra gagnaauðkenna (e. URI) lýst í EBNF fyrir þá sem finnst lýsingin hér á undan óljós eða of löng, en Netslóðir eru stöðluð gagnaauðkenni.
netslóð = bygging ":" ( [ "//" [ hýsill ] "/" ] | [ hýsill ] ) [ slóð ] [ "?" beiðni ] [ "#" brot ] bygging = stafur [ stafur | tala | "-" | "+" | "." | hýsill = nafn | IPv4 | IP slóð = bókstafir [ "/" slóð ]* | "" beiðni = bókstafir "=" bókstafir [ "&" beiðni ]* brot = bókstafir*
Lýsingin er að miklu leiti fengin úr RFC 3986.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.