Neró
Rómverskur keisari frá 54 til 68 e.Kr / From Wikipedia, the free encyclopedia
Nero Claudius Caesar Augustus Germanicus (15. desember 37 – 9. júní 68) var fimmti og síðasti rómverski keisarinn úr ætt Júlíusar Caesars. Hann tók við krúnunni af Claudíusi frænda sínum, sem hafði ættleitt hann.
Staðreyndir strax Valdatími, Fæddur: ...
Neró | |
Rómverskur keisari | |
Valdatími | 54 – 68 |
---|---|
Fæddur: |
15. desember 37 |
Fæðingarstaður | Antium |
Dáinn: |
9. júní 68 |
Dánarstaður | Róm |
Forveri | Claudíus |
Eftirmaður | Galba |
Maki/makar | Claudia Octavia, Poppea Sabina, Statilia Messalina |
Börn | Claudia Augusta |
Faðir | Gnaeus Domitius Ahenobarbus |
Móðir | Agrippina yngri |
Fæðingarnafn | Lucius Domitius Ahenobarbus |
Keisaranafn | Nero Claudius Caesar Augustus Germanicus |
Ætt | Julíska-claudíska ættin |
Loka
Útbreidd ímynd Nerós, byggð á skrifum andstæðinga hans, er á þá leið að hann hafi verið glaumgosi sem lét sig litlu skipta afdrif ríkisins og almennings. Á þeirri ímynd byggir sú staðhæfing að hann hafi leikið á hörpu meðan Rómaborg brann.