![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/87/Nanning_Airport_exterior.jpg/640px-Nanning_Airport_exterior.jpg&w=640&q=50)
Nanning Wuxu-alþjóðaflugvöllurinn
alþjóðaflugvöllur í Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Alþjóðaflugvöllur Nanning Wuxu (IATA: NNG, ICAO: ZGNN) (kínverska: 南宁吴圩机场; rómönskun: Nánníng Wúxū Jīchǎng) er flughöfn Nanning höfuðborgar Guangxi héraðs í Alþýðulýðveldinu Kína. Hann er eini flugvöllur héraðsins sem býður upp á alþjóðlegar tengingar.
![Mynd sem sýnir flughlað Nanning Wuxu flugvallarins við Nanning borg, Guangxi héraði í Kína.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/87/Nanning_Airport_exterior.jpg/640px-Nanning_Airport_exterior.jpg)
![Mynd sem sýnir brottfararmiðstöð Nanning Wuxu flugvallarins við Nanning borg, Guangxi héraði í Kína.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/6d/Departure_hall.jpg/640px-Departure_hall.jpg)
![Mynd sem sýnir innritunaraðstöðu Nanning Wuxu flugvallar.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/32/Checkin_counters.jpg/640px-Checkin_counters.jpg)
Flugvöllurinn er staðsettur um 31 kílómetra suðvestur af miðborg Nanning í bænum Wuxa, sem gefur vellinum nafn. Hann hefur tvær farþegamiðstöðvar og er meginflughöfn héraðsins Guangxi. Árið 2019 þjónaði flugvöllurinn um 15.8 milljónum farþega og 122.000 tonnum af farmi.