From Wikipedia, the free encyclopedia
Mýrasýsla (einnig Mýrar) var ein af sýslum Íslands. Sýslur eru ekki lengur stjórnsýslueining á Íslandi, en nafnið er enn notað til að vísa til svæðisins.
Mýrarsýsla er á Vesturlandi og nær frá Hvítá í Borgarfirði að Hítará. Sýslan er alls 3.270 km².
Úti fyrir strönd Mýrasýslu eru ótal sker og er aðgrunnt að ströndinni. Mestur hluti sýslunnar er láglendur og kallast hann einu nafni Mýrar og ná þær allt inn að Norðurá og Gljúfurá meðfram Hvítá. Mýrarnar eru víða illar yfirferðar, með lágum klapparholtum inn á milli. Holt þessi eru mörg hver vaxin birkikjarri. Upp af Mýrunum ganga síðan dalir inn í hálendið; helstu dalir eru Hítardalur, Hraundalur með Langavatnsdal, Norðurárdalur og Þverárhlíð austust.
Mýrasýslan er öll gróðursæl og er gróðurlendið útbreiddast á Mýrum. Afréttir eru einnig grösugir. Í Mýraeldum vorið 2006 skemmdist þó nokkurt gróðurlendi en líklegt er talið að það muni ná sér á einhverjum áratugum.
Mýrasýsla er í lögsagnarumdæmi með Borgarfjarðarsýslu og hefur sýslumaður aðsetur sitt í Borgarnesi. Sveitarfélög innan Mýrasýslu eru tvö, Borgarbyggð og Hvítársíðuhreppur.
Mýrarsýsla var kjördæmi í Alþingiskosningum fram til 1959, er Vesturlandskjördæmi var myndað.
Nr. | Þing | Þingmaður Mýrasýslu | Tímabil | Flokkur |
---|---|---|---|---|
1. | 1. lögþ. | Hjálmur Pétursson | 1875-1880 | |
2. lögþ. | ||||
3. lögþ. | ||||
2. | 4. lögþ. | Egill Egilsson | 1880 – 1885 | |
5. lögþ. | ||||
6. lögþ. | ||||
3. | 7. lögþ. aukaþing | Árni Jónsson | 1886 – 1892 | |
8. lögþ. | ||||
9. lögþ. | ||||
10. lögþ. | ||||
4. | 11. lögþ. | Benedikt Kristjánsson | 1893 | |
5. | 12. lögþ. aukaþing | Halldór Daníelsson | 1894 –1900 | |
13. lögþ. | ||||
14. lögþ. | ||||
15. lögþ. | ||||
6. | 16. lögþ. | Magnús Andrésson | 1900 –1908 | |
17. lögþ. aukaþing | ||||
18. lögþ. | ||||
19. lögþ. | ||||
20. lögþ. | ||||
7. | 21. lögþ. | Jón Sigurðsson | 1908 –1911 | Sjálfstæðisflokki |
22. lögþ. | ||||
8. | 23. lögþ. | Magnús Andrésson | 1908 –1911 | Sambandsflokki |
24. lögþ. | ||||
9. | 25. lögþ. aukaþing | Jóhann Eyjólfsson | 1914-1915 | Heimastjórnarflokki |
26. lögþ. | ||||
10. | 27. lögþ. aukaþing | Pétur Þórðarson | 1916-1927 | Sjálfstæðisflokki þvers |
28. lögþ. | ||||
29. lögþ. aukaþing | ||||
30. lögþ. aukaþing | ||||
31. lögþ. | ||||
32. lögþ. aukaþing | ||||
33. lögþ. | ||||
34. lögþ. | Sparnaðarbandalagi | |||
35. lögþ. | ||||
36. lögþ. | ||||
37. lögþ. | ||||
38. lögþ. | Framsóknarflokki | |||
39. lögþ. | ||||
11. | 40. lögþ. | Bjarni Ásgeirsson | 1927-1951 | |
41. lögþ. | ||||
42. lögþ. | ||||
43. lögþ. | ||||
44. lögþ. aukaþing | ||||
45. lögþ. | ||||
46. lögþ. | ||||
47. lögþ. aukaþing | ||||
48. lögþ. | ||||
49. lögþ. | ||||
50. lögþ. | ||||
51. lögþ. aukaþing | ||||
52. lögþ. | ||||
53. lögþ. | ||||
54. lögþ. | ||||
55. lögþ. | ||||
56. lögþ. | ||||
57. lögþ. aukaþing | ||||
58. lögþ. aukaþing | ||||
59. lögþ. | ||||
60. lögþ. | ||||
61. lögþ. | ||||
62. lögþ. | ||||
63. lögþ. | ||||
64. lögþ. | ||||
65. lögþ. | ||||
66. lögþ. | ||||
67. lögþ. | ||||
68. lögþ. | ||||
69. lögþ. | ||||
70. lögþ. | ||||
12. | 71. lögþ. | Andrés Eyjólfsson | 1951-1956 | |
72. lögþ. | ||||
73. lögþ. | ||||
74. lögþ. | ||||
75. lögþ. | ||||
13. | 76. lögþ. | Halldór E. Sigurðsson | 1956-1959 | |
77. lögþ. | ||||
78. lögþ. | ||||
79. lögþ. aukaþing |
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.