Everestfjall
hæsta fjall jarðar / From Wikipedia, the free encyclopedia
Everest (þekkt sem Sagarmāthā í Nepal og Chomolungma í Tíbet) er hæsta fjall jarðar, alls 8.848,86 metrar yfir sjávarmáli samkvæmt opinberum mælingum kínverska ríkisins frá október 2005. Tindur þess er í Tíbet en fjallshryggurinn neðan hans aðskilur Nepal og Tíbet, þ.e.a.s. að landamæri þeirra liggja um hrygginn.
Everestfjall | |
Everestfjall séð frá Kala Patthar | |
Hæð | 8848,86 m. yfir sjávarmáli |
Staðsetning | Landamæri Nepal og Kína (Tíbet) |
Fjallgarður | Himalajafjöll |
Árið 1865, var Everest valið sitt formlega nafn á ensku af hinu Konunglega Félagi um Landafræði (the Royal Geographical Society), eftir uppástungu Andrew Waugh, sem gegndi nokkurs konar stöðu við kortlagningar innan breska stjórnarinnar á Indlandi, og valdi hann nafn forvera síns í því starfi, Sir George Everest, og var það góðtekið þrátt fyrir andmæli hans.
Meira en 4000 manns hafa klifið fjallið en yfir 200 manns hafa látist við það [1] Árið 2017 hrundi hið svokallaða Hillary þrep sem var 12 metra klettaveggur nálægt tindinum. [2]
Mikið af rusli hefur safnast upp á leiðum fjallsins en árið 2018 var til dæmis gert átak í losun þess og fyrirhugað er að fljúga burt með 100 tonn af ruslinu. Súrefniskútar, dósir og klifurbúnaður er áberandi. [3]